Almennar guðsþjónustur safnaðarins eru á sunnudögum klukkan 14:00. Í guðsþjónustunum er lögð rík áhersla á fallega og góða tónlist. Einsöngvarar í guðsþjónustunum eru úr kór kirkjunnar. Yfir sumarið eru messurnar kl. 11:00 en kl 14:00 yfir vetrartímann meðan barnastarfið er.