Ritning dagsins

10. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Saga Reykjavíkurprófastsdæmis

Saga Reykjavíkurprófastsdæmis 

Grein eftir sr. Maríu Ágústsdóttur

Árið 1940 var ákveðið með lögum að Kjalarnesprófastsdæmi skyldi skipt og stofnað nýtt prófastsdæmi. Þá varð Reykjavíkurprófastsdæmi til. Því var síðan skipt árið 1991 í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og vestra. Reykjavíkurprófastsdæmi vestra nær yfir tíu prestaköll, frá Seltjarnarnesi að Reykjanesbraut og Fossvogsdal. Skrifstofa prófastsdæmisins er nú í Hallgrímskirkju.

Kirkja hefur staðið í Reykjavík frá því fljótlega eftir kristnitökuna og snemma risu kirkjur í Engey, í Nesi á Seltjarnarnesi, Viðey og Laugarnesi. Þær kirkjur voru allar formlega lagðar niður á ofanverðri 18. öld og sameinaðar Reykjavíkursókn, nema Viðeyjarkirkja, sem heyrði undir Mosfell í Kjalarnesprófastsdæmi til 1986, er hún varð eign Reykjavíkurborgar.

Mikil tímamót urðu með lögum frá 7. maí 1940, þar sem Reykjavík var skipt í 4-6 sóknir, sem vera skyldu sérstakt prófastsdæmi með dómprófasti. Í desember sama ár fóru fram prestskosningar og þjónuðu þá 6 prestar í 4 prestaköllum íbúum Reykjavíkur, alls 37.897 manns, sem áður höfðu notið þjónustu tveggja presta, auk fríkirkjuprestsins. Þessi prestaköll voru: Dómkirkjuprestakall, Halgrímsprestakall, Laugarnesprestakall og Nesprestakall.

Árið 1952 voru íbúar Reykjavíkur orðnir 58.761. Það ár voru stofnuð þrjú ný prestaköll með 4 sóknum; Bústaðaprestakall (skiptist í Bústaðasókn og Kópavogssókn), Háteigsprestakall og Langholtsprestakall. Tíu árum síðar, þegar íbúafjöldinn taldi 76.401, var ljóst að enn þurfti að fjölga, og árið 1964 voru Ás- og Grensásprestaköll stofnuð. Yngsti söfnuður, sem telst til Reykjavíkurprófastsdæmis vestra, Seltjarnarnessöfnuður, var stofnaður 1974, og gerður að sérstöku prestakalli 1986.

Dómprófastar:

  • Sr. Friðrik Hallgrímsson 1940-1945
  • Sr. Bjarni Jónsson 1945-1951
  • Sr. Jón Auðuns 1951-1973
  • Sr. Óskar J. Þorláksson 1973-1976
  • Sr. Ólafur Skúlason 1976-1989
  • Sr. Guðmundur Þorsteinsson 1989-2000
  • Prófastar Reykjavíkurprófastsdæmis vestra:
  • Sr. Jón Dalbú Hróbjartsson frá stofnun þess 1991
  • Sr. Ragnar Fjalar Lárusson leysti hann af 1994-1997

Héraðsprestar:

  • Sr. Ingólfur Guðmundsson 1991-1993 í báðum prófastsdæmunum; til 1996 í vestra
  • Sr. Gylfi Jónsson 1996-2000
  • Sr. María Ágústsdóttir leysti sr. Gylfa af 1998-1999; skipuð í embættið haustið 2000
  • Sr. Bára Friðriksdóttir 2004-2005 (í barnsburðarleyfi sr. Maríu)
  • Sr. Hans Markús Hafsteinsson, ráðinn í sérverkefni frá 2006

Skrifstofustjóri frá 1991:

  • Margrét Bragadóttir

María Ágústsdóttir tók saman með hliðsjón af riti Ástráðs Sigursteindórssonar: Reykjavíkurprófastsdæmi 1940 – 50 ára – 1990 Ágrip af sögu.

<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar