Aðalsafnaðarfundar Bústaðasóknar 2009
Sunnudaginn 9. maí 2010 kl.15:00
Formaður sóknarnefndar, Guðrún S. Jakobsdóttir, setti fundinn og gerði tillögu um Axel Bender sem fundarstjóra og Sigríði Ósk Pálmadóttur sem fundarritara sem fundurinn samþykkti. Á fundinum var dreift dagskrá, ársreikningi 2009 og fjárhagsáætlun 2010.
1. Skýrsla formanns sóknarnefndar:
Guðrún S. Jakobsdóttir flutti skýrslu formanns:
“Heil og sæl kæru safnaðarsystkin.
Gleðilegt sumar ! Ég vil byrja á því að þakka ykkur fyrir að gefa ykkur tíma til að mæta á Aðalsafnarfund Bústaðarsóknar og að þakka fyrir gott og ánægjulegt samstarf undanfarið ár.
Í máli mínu mun ég gera grein fyrir störfum sóknarnefndar á liðnu ári og greina frá helstu þáttum í starfi kirkjunnar.
Eins og fram kemur í dagskrá fundarins munu verða flutta skýrslur um starfið í vetur.
Er ég var að lesa yfir skýrslu mína frá síðasta ári sá ég að þar minnist ég á að sr. Pálmi hefði verið þá í „kvennaríki“ J en það er liðin tíð! Því nokkrar breytingar hafa orðið á starfsliði okkar. Sigurbjörn H. Jakobsson var ráðinn kirkjuvörður í ágúst á s.l. ári og Jónas Þórir organisti hefur komið í stað Renötu Ivan frá janúar s.l.
Á síðast liðnu ári var fjölgað í sóknarnefndinni úr 7 aðalmönnum og 7 varamönnum í 9 aðalmenn og 9 varamenn eða í 18 manns. Er það ein af fjölmennustu sóknarnefndum landsins. Það er afar ánægjulegt að sjá hversu fólk er viljugt að gefa af sér og taka þátt í að vinna fyrir kirkjuna sína.
Á síðastliðnu ári voru eftirtaldir í sóknarnefndinni:
Árni Sigurjónsson
Esther Guðmundsdóttir
Guðríður Stefánsdóttir
Guðrún Kristín Svavarsdóttir
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir
Gunnar Sigurðsson
Hafsteinn Guðmundsson
Helga Melkorka Óttarsdóttir
Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir
Magnús Viðar Skúlason
Óskar Ármannsson
Rakel Sveinsdóttir
Sigríður Ósk Pálmadóttir
Sigurjóna Sigurðardóttir
Stefanía Davíðsdóttir
Tómas Eiríksson
Þráinn Þorvaldsson
Þorsteinn Ingi Víglundsson
Því miður hefur Rakel Sveinsdóttir óskað eftir lausn frá nefndinni sökum anna og þurfum við því að kjósa inn 1 varamann í hennar stað.
Nefndin skipti síðan með sér verkum og í framkvæmdanefnd áttu sæti þau:
Guðrún Sigríður Jakobsdóttir, formaður
Þráinn Þorvaldsson, varaformaður
Esther Guðmundsdóttir, gjaldkeri
Sigríður Ósk Pálmadóttir ritari
Þorsteinn I. Víglundsson form. húsnefndar
Framkvæmdanefndin hittist á milli sóknarnefndafunda og sér um að starfið í kirkjunni gangi eins vel og kostur er. Nefndin sér um ráðningu starfsfólks og er nefndinni það afar mikilvægt að til starfa í kirkjunni veljist fólk sem sýnir sjálfstæði, frumkvæði og mikla ábyrgð í starfi.
Það er mér því mikil ánægja, að geta af heilum hug, þakkað starfsfólki okkar fyrir þeirra frábæru störf, aðhaldssemi og umhyggju fyrir kirkjunni og öllu starfi þeirra.
Meðal starfsfólks Bústaðakirkju eru þeir sem annast tónlistina, Jóhanna V. Þórhallsdóttir er kórstjóri barna-og unglingakóranna með meiru. Kirkjuverðir eru þeir Ragnar Guðmundsson og Sigurbjörn Hlíðar Jakobsson og Sigurbjörg Þráinsdóttir er húsmóðir og Goshja (eða Gréta á íslensku) sem sér um að halda öllu hreinu og fínu.
Kirkjukórinn er að mestu byggður upp á lærðu söngfólki og tók stórsöngvarin Jóhann Friðgeir Valdimarsson við formennsku kórsins á s.l. ári af Svani Valgeirssyni sem hafði verið formaður í mörg ár. Þakka ég Svani kærlega fyrir gott samstarf .
Jólatónleikar kórsins voru 15. desember undir stjórn Renötu Ivan og var sérstakur gestur tónleikanna stórsöngvarinn Kristinn Sigmundsson.
Jóhanna er búin að vera hjá okkur í rúman áratug og hefur, með óstöðvandi áhuga og umhyggju, kennt börnum hverfisins söng. Aðallega þó stúlkunum því strákarnir virðast eitthvað tregir í sönginn.
Foreldrafélag barnakóranna er öflugt og var stórkostlegt að sjá gleðina sem réði þegar sett var upp saumastofa í Bókasafninu í haust og búningar á alla barnakórana voru saumaðir af foreldrum, ömmum og öfum J
Sigurbjörg húsmóðir safnaðarheimilis hefur rækt starf sitt aldeilis frábærlega, með miklum myndarskap frá fyrsta degi. Það sést best á „matarástinni“ sem (h)eldriborgararnir hafa á henni, og ekki má gleyma að nefna erfidrykkjurnar og veislurnar sem hún tekur að sér hér í safnaðarheimilinu, sem víða fer hróður af.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir var í hálfu starfi hér í Bústaðakirkju og hálfu í Langholtskirkju fram til síðustu áramóta. Eftir að efnahagsaðstæður breyttust svona skelfilega í okkar þjóðfélagi, varð Þjóðkirkjan einnig að skera niður í sínum kostnaði og fékkst því ekki áframhald á ráðningu í þessa stöðu. Þakka ég henni hennar störf hjá okkur.
Guðsþjónustan er miðpunktur í öllu safnaðarstarfi kirkjunnar. Messað er alla helga daga ársins og barnamessur frá september og fram í miðjan maí. Bára Elíasdóttir hefur verið leiðandi í því starfi og gert það af einstakri alúð og umhyggju. Henni til aðstoðar hefur verið Guðný Guðmundsdóttir.
Messuhóparnir hafa verið virkir og messuþjónarnir aðstoðað við messur á sunnudögum og við fermingar o.fl. Í þeim eru sóknarnefndarfólk og sóknarbörn sem áhuga hafa á kirkjulegu starfi og eru nú 5 hópar sem skipta með sér messudögum.
Ég er sannfærð um að messuhóparnir eru komnir til að vera. Þeir hafa m.a. orðið til að tengja sóknarbörnin mun sterkari böndum við kirkjuna og tala þau nú um kirkjuna sína. Einstaklega gott og áhugasamt fólk sem er í messuhópunum.
Ef einhver hefur áhuga á að bætast í hóp messuþjóna, þá er það lítið mál og bjóðum við alla velkomna.
Á fimmtudagsmorgnum eru helgistundir í Hæðargarði og í Maríuhúsi í Blesugróf og samvera eldri borgara, hér í safnaðarheimilinu á miðvikudögum, hefur verið mjög vel sótt.
Í vetur hefur Bára Elíasdóttir stjórnað miðvikudagsstarfinu ásamt þeim Laufeyju Kristjánsdóttur, Elínu Hrefnu Hannesdóttur og Þóru Mínervu Hreiðarsdóttur og þeim til aðstoðar er einnig Elísabet Þórðardóttir og Sigrún Sturludóttir.
Þakka ég þeim innilega fyrir þeirra góðu störf.
Mömmumorgnar eða foreldramorgnar eins og jafnréttið kallar eftir, hafa verið á fimmtudagsmorgnum í umsjón Kristínar Vilborgar Þórðardóttur.
Í byrjun nóvember gengu fermingarbörn í hús í sókninni og söfnuðu fyrir Hjálparstarf kirkjunnar og fengu þau mjög góðar viðtökur, þrátt fyrir erfiðar aðstæður í samfélaginu
Að venju var aðventukvöldið vel sótt. Ræðumaður kvöldsins var María Ellingsen. Á nýársdag var ræðumaður Agnes Bragadóttir.
Í febrúar var þriggja kvölda fyrirlestraröð, vikulega. Fyrsta var bænanámskeið, annað um óhefðbundnar lækningar en þar talaði Þráinn Þorvaldsson um meðferð sem hann hefur verið í vegna krabbameins í blöðruhálskirtli og þriðja um græðgina, eina af dauðasyndunum sjö.
Æskulýðsstarfið hefur ekki verið nógu öflugt hjá okkur undanfarið ár og höfum við því ákveðið að ganga til samstarfs við KFUM og K. Þeir munu leggja til tvo leiðtoga sem munu starfa með börnum okkar og unglingum. Þannig viljum við bjóða börnum og unglingum í hverfinu okkar upp á að koma í kirkjuna og taka þátt í skemmtilegu kristilegu starfi.
Á s.l. ári styrkti sóknarnefndin ungan dreng í sókninni, Daníel Ágúst Gautason, til að sækja leiðtogaþjálfun í ÆSKR. Kláraði hann fyrsta stig nú í apríl og vonast ég til að framhald verði og að hann verði framtíðarleiðtogi hjá okkur J
Síðast liðið sumar á meðan tómstundamiðstöð ÍTR Bústaðir var lokuð, var ráðist í gagngerar endurbætur á húsnæðinu vegna brunavarna. Var unnið af miklum krafti undir stjórn Þorsteins Víglundssonar og Hafsteins Guðmundssonar og var húsnæðið tilbúið fyrir upphaf starfsins í september. Kostnaður við endurbæturnar var um 9 milljónir sem greiddur var úr sjóði kirkjunnar og var það viðhaldskostnaður síðast liðins árs. Vil ég nota tækifærið og færa þeim félögum Þorsteini og Hafsteini svo og öllum öðrum sem að verkefninu komu, okkar hjartans þakkir fyrir þeirra frábæru störf! Það er sannfæring mín að án þeirra hefði þessi framkvæmd orðið mun dýrari.
Kæru fundarmenn
Kirkjan okkar og starfið í henni er lifandi. Það er með samvinnu og samstarfi sóknarbarna og þeirra sem valdir eru til forystu sem við fáum kraftinn til starfa. Krafturinn býr ekki í okkur einum, því Guð leggur grunninn og gefur okkur viljann til þjónustu.
Kirkjan er rekin með sóknargjöldum sem ríkið innheimtir. Sóknargjöldin er félagsgjöld sem innheimt eru af hinu opinbera og greidd til safnaða eftir fjölda félaga í hverri sókn. Þau standa undir því fjölþætta safnaðarstarfi sem kirkjurnar bjóða uppá, sem er í flestum tilfellum endurgjaldslaust.
Við hér í Bústaðakirkju höfum ávallt haft það að leiðarljósi að efla og styrkja safnaðarstarfið, þrátt fyrir ýmsar framkvæmdir hér í kirkjunni. Fjárhag okkar eins og annarra sókna er nú stefnt í voða, því sóknargjöld voru lækkuð um 4.5% á síðasta ári og um 8% á yfirstandi ári. Á árinu 2011 hefur verið boðað að sóknargjöld lækki enn og aftur um 15%. Við höfum hagrætt, frestað framkvæmdum og reynt að spara eins og kostur er. Ef frekari skerðing verður á sóknargjöldum eins og boðað hefur verðir, má búast við því að einhver breyting verði á starfsemi okkar. En við skulum vona að svo verði ekki.
Safnaðarstarf er mikið og vaxandi um þessar mundir m.a. til þess að svara aukinni þörf á erfiðum tímum. Því get ég ekki annað en mótmælt þeirri miklu skerðingu sem á sér stað nú og á næstu árum, eftir því sem tilkynnt er.
Starfið byggir að mestum hluta á mikilli vinnu sóknarprests, organista, kirkjukórsins, barnakórstjóra og barnakórum auk allra þeirra fjölmörgu sjálfboðaliða sem vinna að hinu kirkjulega starfi.
Færi ég þeim öllum bestu þakkir sóknarnefndarinnar fyrir öflugt starf í þágu kirkjunnar.
Eins og ég segi svo oft: “ Það er ómetanlegt að hafa gott starfsfólk, sem er vakið og sofið yfir velferð kirkjunnar okkar.”
Einnig vil ég þakka þeim Láru V. Júlíusdóttur og Bent S. Einarssyni fyrir þeirra störf sem skoðunarmenn bókhalds kirkjunnar.
Það er svo gott að gera leitað á sömu traustu miðin.
Að lokum langar mig að þakka sóknarnefndarfólki samstarfið á liðnu ári. Og þá má ég til með að þakka sérstaklega mínum helstu hjálparhellum þeim Esther og Þráni fyrir þeirra frábæru aðstoð við mig í starfi formanns.
Það segja sumir að Gjafir guðs séu oft pakkaðar í erfiðleika, því þar kemur þroskinn og reynslan. Þakka ég fyrir allar mínar gjafir J
Takk fyrir
Guðrún S. Jakobsdóttir”
2. Skýrsla Gjaldkera og fjárhagsáætlun lögð fram
Esther Guðmundsdóttir gerði grein fyrir ársreikningi 2009.
Tekjur umfram gjöld á árinu 2009 voru kr. 936.059,-
Skuldir og eigið fé á árinu 2009 voru kr. 629.446.415,-
Var þessi afkoma betri en gert var ráð fyrir en það skýrist m.a. með rekstri safnaðarheimilis sem gekk mjög vel og hversu vel starfsfólk kirkjunnar bæði launað og ólaunað var vakandi yfir fjármálum kirkjunnar.
Kjörnir skoðunarmenn voru þau Bent S. Einarsson og Lára V. Júlíusdóttir.
Esther kynnti einnig fjárhagsáætlun fyrir 2010. Gert er ráð fyrir halla árið 2010 upp á kr. 4.460.000,- Gert er ráð fyrir að sóknargjöld lækki enn frekar en verið hefur.
3. Samþykkt ársreikninga
Fundarstjóri kallaði eftir spurningum og athugasemdum um ársreikning. Engar spurningar eða athugasemdir bárust. Ársreikningur 2009 var lagður fram og var samþykktur samhljóða. Fjárhagsáætlun fyrir 2010 var lögð fram og var samþykkt samhljóða.
4. Fluttar voru skýrslur vegna safnaðarstarfs
Barnakórar:
Jóhanna V. Þórhalssdóttir gerði grein fyrir kórastarfi. Hér kemur skýrsla Jóhönnu:
“Kæru safnaðarsystkin!
Á liðnu starfsári stjórnaði ég barna- og unglingakórum kirkjunnar. Í englakórnum voru tæplega 30 börn, 20 börn í barnakór, stúlknakórinn taldi 25 stúlkur og í kammerkórnum voru 12 stúlkur. 5 stúlkur voru í bjöllukór.
Kórarnir hittust einu sinni í viku að jafnaði, sem þó var breytilegt því oft var bætt við aukaæfingum. Í vetur sungum við í messu einu sinni í mánuði auk þess sem við tókum þátt í aðventutónleikunum. Við höfum sungið fyrir aldraða og við ýmis önnur tækifæri svo sem á fundum líknarsamtaka. Framundan er ferð á Snæfellsnes helgina 14.-16. maí n.k. með stúlkna-, kammer- og bjöllukór.
Starfið í vetur hefur gengið mjög vel og ekkert varpað skugga á frábæra samvinnu við presta, kirkjuverði og foreldrafélagið. Kórarnir fengu allir nýja búninga í haust með samstilltu átaki foreldra og kórstjóra þar sem setið var saman nokkur kvöld og saumaðir hundrað búningar. Þessi iðja efldi mjög samhug í foreldrahópnum og sparaði auk þess kórunum mikið fé.
Ég hef annast þessa kóra undangengin 14 ár og starfið hefur borið ríkulegan ávöxt. Fjölmargir ágætir tónlistarmenn stíga sín fyrstu skref í þessu barna- og unglingastarfi sem glæðir áhuga þeirra fyrir tónlist og leggur grunn að kristilegu uppeldi barnanna sjálfra og ekki síður foreldranna. Þetta tónlistarstarf rennir styrkum stoðum undir safnaðarstarfið vegna þess að það kennir fólki að umgangast kirkjuna sína af virðingu og þakklæti.
Þakka samastarfið á liðnu ári.
Jóhanna V. Þórhallsdóttir”
Barnastarf og öldrunarstarf :
Bára Elíasdóttir gerði grein fyrir barnastarfinu. Sérstakar barnamessur eru alla sunnudaga yfir veturinn sem er ólíkt því sem gert er í öðrum kirkjum þar sem barnastarfið er hluti af almennu messunni. Aðsóknin hefur verið góð en þó mest á haustin en minni þegar fer að vora. Guðný Lára Guðmundsdóttir hefur verið Báru til aðstoðar í barnamessunum.
Starf aldraðra hefur í vetur verið í umsjón Báru Elíasdóttur. Um 50 manns hafa mætt á miðvikudögum í öldrunarstarfið en þar hefur verið boðið upp á fjölbreytta dagskrá, ýmis tónlistaratriði, kaffiveitingar og vísnagátan vinsæla hefur einnig verið á hverjum miðvikudegi. Í september síðastliðnum var farin haustferð á Akranes en þar að auki var jólasamveran á sínum stað og þorrablótið. Sýning á handavinnu öldrunarstarfsins verður haldin eftir messu á uppstigningardag þann 13. maí. Að lokum greindi Bára frá því að þann 19. maí verður farið í vorferð eldri borgara.
Kvenfélag Bústaðakirkju:
Laufey Kristjánsdóttir formaður kvenfélagsins gerði grein fyrir starfi kvenfélagsins síðasta árið. Starfið var með hefðbundnu sniði og ýmislegt var á dagskrá hjá kvenfélaginu þetta starfsárið. Reglulegir fundir voru haldnir og voru um 25 konur á hverjum fundi. Ýmsir gestir komu í heimsókn á fundina á liðnum vetri og hefur félagið sinnt ýmsum verkefnum. Kvenfélagið bauð öllum kirkjugestum til morgunverðar eftir messu á páskadagsmorgun sem var sérlega ánægjulegt. Félagið hefur einnig séð um kaffiveitingar í Prjónakaffinu sem haldið er einu sinni í mánuði sem hefur verið fjáröflun fyrir kvenfélagið og gott tækifæri til að kynna á kvenfélagið. Aðalfjáröflun félagsins hefur þó verið með happdrætti og styrkir félagið ýmis málefni m.a. Grensásdeild, starfsmenntunarsjóð kvenna og fleiri. Glæðurnar, kór kvenfélagsins, æfir einu sinni í viku á fimmtudögum. Síðastliðið vor (24. maí) fór kvenfélagið í sumarferð í Borgarnes og sáu leikritið um Brák. Fermingarkyrtlarnir þ.e. mátun og hreinsun eru í umsjón kvenfélagsins og einnig eru kvenfélagskonur með í messuhóp sem sér um ritningarlestur í sunnudagsmessum. Starfið í kvenfélaginu er mikilvægt öllum þeim konum sem þar starfa. Kvenfélagið starfar innan bandalags kvenna í Reykjavík og sækir formaður og varaformaður fundi þangað reglulega. Laufey greindi að lokum frá því að 110 konur eru í félaginu. Endurnýjun hefur ekki verið mikil en þó bættust 2 nýliðar í félagið í vetur.
5. Kjör í sóknarnefnd
Kosið er í sóknarnefnd annað hvert ár og var það gert síðast árið 2009 en þar sem Rakel Sveinsdóttir gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu þá þurfti að kjósa um hennar sæti. Hún átti að sitja til ársins 2011. Jafet Ólafsson gaf kost á sér í stað Rakelar. Engin önnur framboð komu fram á fundinum og Jafet Ólfasson því kosinn samhljóða. Jafet situr til ársins 2011 eða þar til kjörtímabil Rakelar hefði runnið út.
6. Kosning tveggja endurskoðenda
Tillaga kom fram um 2 skoðunarmenn þau Bent S. Einarsson og Láru V. Júlíusdóttur. Tillagan var samþykkt með lófataki.
7. Önnur mál
Þráinn Þorvaldsson þakkaði Axel fyrir góða fundarstjórn og fyrir góð störf í messuhópum. Þráinn situr nú sitt 20. starfsár og lýsti mikilli ánægju með þann tíma og þakkaði Pálma Matthíassyni sóknarpresti fyrir að leiða starfið af miklum krafti og framkvæmdarnefnd og gjaldkera fyrir einstaklega gott starf. Ennfremur lýsti hann ánægju sinni með hið nýja og kraftmikla fólk sem kom inn í sóknarnefndina á síðasta ári. Að lokum greindi Þráinn frá messþjónahátíð sem haldin var á vegum Reykjavíkurprófastdæmanna þann 6.maí og þakkaði Sigríði Ósk Pálmadóttir fyrir að halda utan um messuhópana í Bústaðakirkju.
Pálmi Matthíasson sóknarprestur tók til máls og þakkaði öllum ánægjulegt samstarf á árinu sem er að líða og sagði það gott að hafa með sér alla þá sem að kirkjustarfinu koma til að takast á við hin ýmsu verkefni sem þarf að sinna. Hann lýsti áhyggjum af fjármálum kirkjunnar og sagði að það gæti stefnt í að heildarlækkun sóknargjalda yrði um 25% þegar upp verður staðið. Kirkjunnar menn hafa fundað með allsherjarnefnd Alþingis en þar voru menn ekki sammála um hvort sóknargjald væri skattur eða félagagjald sem ríkið innheimtir fyrir söfnuði. Sóknargjöldin eru grundvöllur fyrir rekstrinum og því mikilvægt að huga að því hvaða leiðir er hægt að fara til að benda okkar þingmönnum á að þetta sé félagagjald.
Pálmi sagðist hlakka til næsta árs og kallaði eftir hugmyndum frá sóknarbörnum um hvernig þau vilja sjá kirkjuna sína. Ræðumenn og fyrirlesarar úr hópi leikmanna hafa reynst kirkjunni góðir og nefndi Pálmi sem dæmi að á aðventuhátíðinni væri ræðumaður alltaf leikmaður. Að lokum þakkaði Pálmi öllum fyrir og óskaði guðs blessunar.
Ekki voru fleiri mál borin upp og sleit formaður sóknarnefndar fundi.
Fundi slitið kl. 16:05
Fundarritari: Sigríður Ósk Pálmadóttir