Ritning dagsins

10. september 2010

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Ferming 2011 - skráning og fyrirkomulag




Fermingar 2011

Skráning tilvonandi fermingarbarns er framkvæmd með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið palmi@kirkja.is merkt: skráning – fermingarstarf

Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:

Nafn fermingarbarns, kennitala, skírnardagur og netfang fermingarbarns.

Nöfn foreldra ásamt símanúmerum og netföngum.

Gott væri einnig að fá farsímanúmer fermingarbarnsins, ef það er með eigin síma.

Ef hægt er þá væri gott að fá beiðni um fermingardag.

Fyrirkomulag fermingarfræðslu Bústaðakirkju 2010 - 2011

Tilhögun fermingarfræðslunnar verður með líkum hætti og undanfarin ár og hefst með messu 15. ágúst kl. 11:00

Bók vegna fræðslunnar verður fáanleg hjá kirkjuvörðum í Bústaðakirkju og kostar kr. 1.000
 

15. ágúst messa kl. 11:00 og eftir messu fundur með foreldrum og síðan fræðsla með fermingarbörnum fræðsla til kl. 15:00

16. ágúst fræðsla, með fermingarbörnum, frá kl. 09:00 til 14:00

17. ágúst fræðsla, með fermingarbörnum,  frá kl. 09:00 til 14:00.

20. – 21. september fermingarnámskeið í Vatnaskógi.

laugardagsfræðsla 10:00 – 13:00 2 x fyrir áramót og 2 x eftir áramót (dags. augl. síðar)

Vikulegar samverur verða síðustu 6 vikur fyrir fermingar

Messusókn ekki sjaldnar en 7 sinnum í almenna messu og eru foreldrar beðnir að sækja messur með börnunum.

Þá eru fermingarbörn hvött til þátttöku í æskulýðsstarfi kirkjunnar.

Á námskeiðinu munum við taka á helstu atriðum kristinnar trúar í nokkrum skrefum. Fermingarbörnin fá verkefni til að leysa og leitað svara við spurningum eins og; Hver er Guð? Hvað er trú? Hver er Jesús? Hvað er bæn? Hvernig á ég að biðja og fyrir hverjum? Hvað er kirkja? Ber ég ábyrgð í sköpunarverkinu? Hvað er ást? Vinátta og gildi hennar.

Námskeiðsefnið tengir vel áleitnar spurningar unglinganna og svör trúarinnar og er hvatning til unglinganna að spyrja og leita.

Fermingardagar næsta árs eru: 10. apríl 2011 sunnudagur kl. 10:30 og 13:30

17. apríl 2011 pálmasunnudagur kl. 10:30 og 13:30

25. apríl 2011 annar í páskadagur kl. 10:30

<<september 2010>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar

Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2010. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar