Ritning dagsins

07. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Fjölskyldumessa með léttum söngvum sunnudaginn 5. september kl. 11:00



Fjölskyldumessa með léttum og glaðlegum söngvum kl. 11:00  Kantor Jónas Þórir verður við flygilinn og félagar úr Kór Bústaðakirkju leiða sönginn. Þetta er góð og gefandi stund fyrir alla fjölskylduna. Messuþjónar aðstoða. Prestur sr. Pálmi Matthíasson.


Litur: Grænn.  Vers vikunnar: 
„Lofa þú Drottin, sála mín, og gleym eigi neinum velgjörðum hans.“ (Slm 103.2b)

Textar dagsins sem er 14. sunnudagur eftir þrenningarhátíð.
Lexía Davíðssálmur 146: 

Hallelúja.
Lofa þú Drottin, sála mín.
Ég vil lofa Drottin á meðan ég lifi,
lofsyngja Guði mínum meðan ég er til.
Treystið eigi tignarmönnum,
mönnum sem enga hjálp geta veitt.
Þegar öndin skilur við þá
verða þeir aftur að moldu
og áform þeirra verða að engu.
Sæll er sá sem á Jakobs Guð sér til hjálpar
og setur von sína á Drottin, Guð sinn,
hann sem skapaði himin og jörð,
hafið og allt sem í því er,
hann sem er ævinlega trúfastur.
Hann rekur réttar kúgaðra,
gefur hungruðum brauð.
Drottinn leysir bandingja,
Drottinn opnar augu blindra,
Drottinn reisir upp niðurbeygða,
Drottinn elskar réttláta,
Drottinn verndar útlendinga,
hann annast ekkjur og munaðarlausa
en óguðlega lætur hann fara villa vegar.
Drottinn er konungur að eilífu,
Guð þinn, Síon, frá kyni til kyns.
Hallelúja.

Pistill: Galatabréf 5. kafli vers 16-24.

En ég segi: Lifið í andanum og þá fullnægið þið alls ekki girnd holdsins. Holdið girnist gegn andanum og andinn gegn holdinu. Þau standa hvort gegn öðru til þess að þið gerið ekki það sem þið viljið. En ef þið leiðist af andanum þá eruð þið ekki undir lögmáli.
Holdsins verk eru augljós: frillulífi, óhreinleiki, saurlífi, skurðgoðadýrkun, fjölkynngi, fjandskapur, deilur, metingur, reiði, eigingirni, tvídrægni, flokkadráttur, öfund, ofdrykkja, svall og annað þessu líkt. Og það segi ég ykkur fyrir, eins og ég hef áður sagt, að þeir sem slíkt gera munu ekki erfa Guðs ríki.
En ávöxtur andans er: kærleiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og sjálfsagi. Gegn slíku er lögmálið ekki. En þeir sem trúa á Krist hafa krossfest holdið með ástríðum þess og girndum.

Guðspjall: Lúkas 17. kafli vers 11-19

Svo bar við á ferð Jesú til Jerúsalem að leið hans lá á mörkum Samaríu og Galíleu. Og er hann kom inn í þorp nokkurt mættu honum tíu líkþráir menn. Þeir stóðu álengdar, hófu upp raust sína og kölluðu: „Jesús, meistari, miskunna þú oss!“
Jesús sá þá og sagði við þá: „Farið og sýnið yður prestunum.“ Þeir héldu af stað og nú brá svo við að þeir urðu hreinir.
En einn þeirra sneri aftur er hann sá að hann var heill orðinn og lofaði Guð hárri raustu. Hann féll fram að fótum Jesú og þakkaði honum. En hann var Samverji. Jesús sagði: „Urðu ekki allir tíu hreinir? Hvar eru hinir níu? Urðu engir til þess að snúa aftur að gefa Guði dýrðina nema þessi útlendingur?“ Síðan mælti Jesús við hann: „Statt upp og far leiðar þinnar. Trú þín hefur bjargað þér.“

<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar