Ritning dagsins

07. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Gömul og forvitnileg frétt frá nóvember árið 1970

FYRSTA GEISLAVARNARBYRGI LANDSINS ER UNDIR
B
Ú STA Ð AKIRKJU

Frétt í Tímanum 5. nóvember árið 1970
SB—Reykjavík, miðvikudag.

Fyrsta geislavarnarbyrgi, sem byggt er sem slíkt á landinu, er í kjallara Bústaðakirkjunnar nýju. Byrgið er alls um 300 fermetrar að stærð og sérstaklega járnbent og styrkt með stálsúlum. Á byrginu er tveir sérstaklega gerðir neyðarútgangar. Almannavarnir hafa staðið straum af aukakostnaði við útbúnað byrgisins.

Otto A. Michelsen, safnaðarformaður Bústaðasóknar, sýndi blaðamanni Timans geislabyrgið í dag. Það er undir safnaðarheimili kirkjunnar og hægt er að komast þangað niður eftir tveim leiðum innan úr kirkjunni og þrem leiðum utan frá. Eins og þarna niðri lítur nú út, er hálf óhuggulegt um að litast, dimint og kalt, enda upphitun ekki komin enn og engir gluggar eru að siálfsögðu á geislavarnarbyrgjum. Byrgið er tvö aflöng herbergi, gangur og salerni. Veggirnir eru sérstaklega járnstyrktir og sjö miklar stálsúlur styðja undir loftið. Fjórar loftvarnar hurðir loka inngöngum í byrgið að innan, en tveir sérstaklega gerðir neyðarútgangar verða á því. Þeir eru þannig útbúnir, að þeir opnast af þrýstingi innan frá, en ekkert þarf að skrúfa. Síðan eru stutt jarðgöng og yfir enda þeirra kemur eins konar hlemmur. Þegar búið er að ganga frá öllu, verða sett þar inn teppi, matvæli og annað slíkt.

Ottó sagði, að yfirvöld virt ust hafa áhuga á að, fylgjast með framkvæmdum við þetta byrgi og hefðu nokkrir aðilar komið og skoðað það. Þá sagðist hann ekki vita annað, en þetta væri fyrsta geislaheimili, sem byggt væri á landinu, en á nokkrum stöðum hefði byggingum verið breytt, þannig að þar væru neyðarbyrgi.

Almannavarnir hafa staðið straum af þeim kostnaði, sem fór í að styrkja veggina sérstaklega, svo og inn- og útgöngum, en byrgið er í eigu Bústaðasóknar.

Þá sagði Ottó, að vinnupallar yrðu teknir frá kirkjunni nú um helgina, ef nógu margir sjálfboðaliðar fengjust. Útivinnu er nú alveg að ljúka og múrhúðun innanhúss hefst væntanlega í næstu viku.

<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar