Ritning dagsins

23. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Messur sunnudaginn 29. janúar




Barnamessa kl. 11:00 Fjölbreytt og gefandi samvera fyrir alla fjölskylduna. Söngur, fræðsla, tónlist. Foreldrar hvattir til þátttöku með börnunum. Emil Þórsson verður við hljóðfærið.



Guðsþjónusta kl. 14:00 Kór Bústaðakirkju syngur, organisti Antonia Hevesi. Messuþjónar aðstoða. Prestur sr. Irma Sjöfn Óskarsdóttir. Heitt á könnunni og kirkjuspjall eftir messu.

 


6. (síðasti) sunnudagur eftir þrettánda - Ummyndun

Litur: Hvítur.

Lexía: 5. Mósebók 18. kafli vers 15 og  18-19:

Spámann slíkan sem ég er mun Drottinn, Guð þinn, láta fram koma úr hópi ættbræðra þinna. Á hann skuluð þið hlýða. Fyrir þá mun ég láta fram koma spámann slíkan sem þú ert úr hópi bræðra þeirra. Ég mun leggja honum orð mín í munn og hann mun boða þeim allt sem ég býð honum. Og hvern þann sem ekki hlýðir á þau orð, sem spámaðurinn flytur í mínu nafni, mun ég sjálfur draga til ábyrgðar.

Pistill: Annað Pétursbréf 1. kafli vers 16-21:

Ekki notaði ég uppspunnar skröksögur er ég kunngjörði ykkur mátt og komu Drottins vors Jesú Krists heldur hafði ég verið sjónarvottur að hátign hans. Því hann meðtók af Guði föður heiður og dýrð þá er raust barst honum frá hinni dýrlegu hátign: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á.“ Þessa raust heyrði ég sjálfur koma frá himni þá er ég var með honum á fjallinu helga.
Nú getum við enn betur treyst orði spámannanna. Það er rétt af ykkur að gefa gaum að því eins og ljósi sem skín á myrkum stað þangað til dagur ljómar og morgunstjarnan rennur upp í hjörtum ykkar. Vitið það umfram allt að enginn þýðir neinn spádóm Ritningarinnar af sjálfum sér. Því að aldrei var nokkur spádómur borinn fram að vilja manns heldur töluðu menn orð frá Guði, knúðir af heilögum anda.

Guðspjall Matteus 17. kafli vers 1-9:

Eftir sex daga tekur Jesús með sér þá Pétur, Jakob og Jóhannes, bróður hans, og fer með þá upp á hátt fjall að þeir væru einir saman. Þar ummyndaðist hann fyrir augum þeirra, ásjóna hans skein sem sól og klæði hans urðu björt eins og ljós. Og Móse og Elía birtust þeim og voru þeir á tali við Jesú. Pétur tók til máls og sagði við Jesú: „Drottinn, gott er að við erum hér. Ef þú vilt skal ég gera hér þrjár tjaldbúðir, þér eina, Móse eina og Elía eina.“
Meðan Pétur var enn að tala skyggði yfir þá bjart ský og rödd úr skýinu sagði: „Þessi er minn elskaði sonur sem ég hef velþóknun á. Hlýðið á hann!“
Þegar lærisveinarnir heyrðu þetta féllu þeir fram á ásjónur sínar og hræddust mjög. Jesús gekk til þeirra, snart þá og mælti: „Rísið upp og óttist ekki.“ En er þeir hófu upp augu sín sáu þeir engan nema Jesú einan.
Á leiðinni ofan fjallið bauð Jesús þeim: „Segið engum frá sýninni fyrr en Mannssonurinn er risinn upp frá dauðum.“

<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar