.jpg)
Nú eru komnar myndir úr ferðinni í Vatnaskóg, sem voru teknar af handahófi hér og hvar. Ferðin gekk vel og fermingarbörnin stóðu sig vel. Hvert einasta sæti í rútunum var setið. Þetta er einn stærsti hópurinn sem hefur verið í fermingarferðalagi í Vatnaskógi og ráðamenn í Skóginum gáfu hópnum góða umsögn. Flest gekk vel og unglingaorkan var mikil en samt hófstillt.
Þið getið klikkað á
Myndir á stikunni hér að ofan og þar er Vatnaskógur 2009 eða klikkað hér á
Myndir til að opna myndasafnið.
Takk fyrir skemmtilega ferð, enda þótt ég sé enn syfjaður og þreyttur. Þið eruð frábær. PM