Ritning dagsins

30. júlí 2010

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Ferming framundan
Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2010. Undirbúningur hefst í ágúst með viku námskeiði. Margvísleg verkefni bíða þeirra og mikilvægt að foreldrar fylgist með fræðslunni og taki þátt með börnunum.
Mikilvægt er að hugleiða inntak fermingarinnar og leggja áherslu á þá hlið fremur en að gleyma sér í því leigja sali og panta aðföng.
Í fermingunni er verið að staðfesta skírnina. Þá gengur ungmenni fram fyrir altari Drottins í helgri athöfn og staðfestir þann vilja, að leitast við af fremsta megni að hafa Jesú Krist að leiðtoga lífsins. Það staðfestir vilja foreldra sinna sem á sínum tíma gengu með barnið til skírnar.
Þetta er stór ákvörðun, sem getur ráðið miklu um framtíð hvers og eins. Þetta er skýr afstaða um viðhorf og stefnu í lífinu.
Það er oft gaman að fylgjast með fermingarbörnunum þennan vetur, sem þau sækja fermingarfræðslu. Framan af vetri vita þau ekki alveg hvernig best er að haga sér í hópnum. Í messunum eru þau óróleg og bíða þess að henni ljúki.
En þegar líður á veturinn breytist þetta viðhorf. Þau skilja betur form messunnar og hugleiða inntak hennar og boðskap.
Mikilvægt er að foreldrar fylgi börnum sínum til guðsþjónustu og sitji hjá þeim í messunni. Öll skilaboð um það að foreldrar eigi ekki að koma með þeim eru ekki rétt.
Messan þarf að vera notaleg upplifun og gleði og bros getur aldrei skyggt á helgi stundarinnar. Það er hvatning í starfi kirkjunnar að finna hvernig boðskapur trúarinnar vinnur sitt verk á hljóðan og helgan hátt.
Þessi hljóði og helgi þáttur vill oft víkja í umgjörð fermingarinnar sjálfrar. Kappið við að halda góða veislu ræður oft ferðinni á kostnað hins hljóða og helga þáttar. Ekkert í starfi kirkjunnar kallar eftir þessu ytra umstangi. Engu að síður viljum við kalla vini og vandamenn saman við tímamót. En það má aldrei víkja grundvellinum sjálfum á burt.
Kæru fermingaarbörn og foreldrar, hugleiðum inntak og trúarlegt gildi fermingarinnar. Gleymum ekki kjarnanum í umstangi og tilboðum líðandi stundar. Fermingin fer fram hvort sem veislusalur er leigður og sliguð borð með kræsingum eru í boði.
Hið kyrrláta og hljóða, sem kristin trú boðar, er ekki í andstöðu eða stríði við líðandi stund. Kristur biður þig aðeins að hugleiða inntak og gildi lífsins í eigin huga fremur en að láta matast af tilboðum líðandi stundar.
Barnið þitt elskar foreldra sína ekki meira fyrir það sem þau kaupa handa því. Það elskar ykkur mest fyrir þann tíma, nálægð og umhyggju, sem þið gefið því. Slík ást er grein af þeim meiði, sem Kristur gefur í kærleika sínum.
Elskum, njótum og verum saman. Látum kirkjuna vera okkur sem heimili og friðarstaður.


<<júlí 2010>>
mþmffls
2829301234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930311
2345678
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar

Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2010. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar