Ritning dagsins

07. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Barnamessur
Barnamessur eru alla sunnudaga yfir vetrartímann klukkan 11:00. Þar er komið saman sungið og leikið og eru foreldrar hvattir til þátttöku. Umsjón með barnamessum hafa þau Bára Elíasdóttir, Elinóra Guðmundsdóttir og Daníel Ágúst Gautason ásamt  sr. Pálma. Þá koma ungmenni og leika með í messunum. Organisti og stjórnandi tónlistar er Jónas Þórir.
Börnin læra morgunversin, sem farið er með í upphafi hverrar samveru:

Vertu, Guð faðir, faðir minn
í frelsarans Jesú nafni,
hönd þín leiði mig út og inn
svo allri synd ég hafni.

Nú er ég klæddur og kominn á ról,
Kristur Jesús veri mitt skjól,
í guðsóttanum gefðu mér
að ganga í dag svo líki þér.

Mikilvægt er að kenna börnunum stafróf bænarinnar;
spenna greipar, lúta höfði, og loka augunum.

Þetta gerum við til að einbeita okkur. Festa hendur saman til þess að vera ekki með þær á hreyfingu. Lúta höfði til að sýna lotningu og forða því að vera með höfuðið á hreyfingu. Loka augum til þess að láta umhverfið ekki taka athygli okkar.

Söngurinn er tjáning lofgjörðar og þakklætis, jafnframt því að geta verið bænin okkar.

Bænin er einlægt samtal okkar við Guð. Hún er samtal tveggja vina, sem vilja rækta samband sitt. Guð hefur gefið okkur lífið og hann víkur aldrei af vegi vináttunnar. Við erum reikul á þeim vegi en viljum reyna og viljum leggja okkur fram.




<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar