Því að þín vegna býður hann út englum sínum til þess að gæta þín á öllum vegum þínum.
Sálm. 91:11
|
Kenn mér að gjöra vilja þinn, því að þú ert minn Guð. Þinn góði andi leiði mig um slétta braut.
Sálm. 143:10 |
Náðugur og miskunnsamur er Drottinn, þolinmóður og mjög gæskuríkur.
Sálm. 145:8
|
Guð fyrirgefur allar misgjörðir þínar, læknar öll þín mein.
Sálm. 103:3 |
Sælir eru miskunnsamir, því að þeim mun miskunnað verða.
Matt. 5:7
|
Því að ég, Drottinn, Guð þinn, held í hægri hönd þína og segi við þig: „Óttast þú eigi, ég hjálpa þér!”
Jesaja 41:13 |
Drottinn er vörður þinn, Drottinn skýlir þér, hann er þér til hægri handar.
Sálm. 121:5
|
Í friði leggst ég til hvíldar og sofna, því að þú, Drottinn, lætur mig búa óhultan í náðum.
Sálm. 4:9 |
Biðjið, og yður mun gefast, leitið og þér munuð finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða.
Matt. 7:7
|
Jesús sagði: „Komið til mín, allir þér sem erfiði hafið og þungar byrðar, og ég mun veita yður hvíld.”
Matt. 11:28 |
Sælir eru þeir, sem hungrar og þyrstir eftir réttlætinu, því að þeir munu saddir verða.
Matt 5:6
|
Engill Drottins setur vörð kringum þá er óttast hann, og frelsar þá.
Sálm. 34:8
|
Drottinn er trúfastur í öllum orðum sínum og miskunnsamur í öllum verkum sínum.
Sálm. 145:13b
|
Drottinn er góður, miskunn hans varir að eilífu og trúfesti hans frá kyni til kyns.
Sálm. 100:5 |
Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.
Matt. 5:8
|
Sælir eru friðflytjendur, því að þeir munu Guðs börn kallaðir verða
Matt. 5:9
|
Hann veitir kraft hinum þreytta og gnógan styrk hinum þróttlausa.
Jesaja 40:29
|
Leitið Drottins, meðan hann er að finna, kallið á hann meðan hann er nálægur!
Jesaja 55:6 |
Allt sem þið viljið, að aðrir menn gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Þetta er lögmálið og spámennirnir.
Matt. 7:12
|
En þeir sögðu: „Trú þú á Drottin Jesú, og þú munt verða hólpinn og heimili þitt.”
Post. 16:31 |
„…en Guði er enginn hlutur um megn.”
Lúk. 1:37
|
Og hann sagði við alla: „Hver sem vill fylgja mér, afneiti sjálfum sér, taki kross sinn daglega og fylgi mér.”
Lúk. 9:23 |
Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf.
Jóh. 3:16
|
Ég er góði hirðirinn. Góði hirðirinn leggur líf sitt í sölurnar fyrir sauðina.
Jóh. 10:11
|
Jesús mælti: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig, mun lifa, þótt hann deyi.”
Jóh. 11:25
|
Jesús segir við hann: „Ég er vegurinn, sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til föðurins, nema fyrir mig.”
Jóh. 14:6 |
Ef þér elskið mig, munuð þér halda boðorð mín.
Jóh. 14:15
|
Þér eruð vinir mínir, ef þér gjörið það, sem ég býð yður.
Jóh. 15:14 |
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.
Heb. 13:8
|
Vér vitum, að þeim, sem Guð elska, samverkar allt til góðs, þeim sem kallaðir eru samkvæmt ákvörðun Guðs
Róm. 8:28 |
Í upphafi skapaði Guð himin og jörð.
1.Mós. 1:1
|
Því að ég þekki þær fyrirætlanir, sem ég hefi í hyggju með yður – segir Drottinn – fyrirætlanir til heilla, en ekki til óhamingju, að veita yður vonarríka framtíð.
Jer. 29:11 |
Ef vér játum syndir vorar, þá er hann trúr og réttlátur, svo að hann fyrirgefur oss syndirnar og hreinsar oss af öllu ranglæti.
1.Jóh. 1:9
|
Vísa mér veg þinn, Drottinn, lát mig ganga í sannleika þínum, ef mér heilt hjarta, að ég tigni nafn þitt.
Sálm. 86:11
|
Allt megna ég fyrir hjálp hans, sem mig styrkan gjörir.
Fil. 4:13
|
Þitt orð er lampi fóta minna og ljós á vegi mínum.
Sálm. 119:105 |