Ritning dagsins

10. september 2010

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Fermingar 2010


Fermingarfræðsla haustið 2009


Fyrirkomulag fermingarfræðslu Bústaðakirkju veturinn 2009-2010

Sami háttur verður á fermingarfræðslu og síðastliðin þrjú ár.


Námskeið verður haldið í Bústaðakirkju 
16. – 23. ágúst áður en skólar hefjast.

Það hefst hefst með guðsþjónustu sunnudaginn 16. ágúst kl. 11:00 og fundi með foreldrum eftir messuna

Fermingarnámskeiðið verður mánudag til föstudags kl.09:00 til um kl. 13:00

og lýkur með guðsþjónustu sunnudaginn 23. ágúst kl. 11:00


Á námskeiðinu munum við taka á helstu atriðum kristinnar trúar í nokkrum skrefum. Fermingarbörnin fá nokkur verkefni til að leysa og mörgum spurningum varpað frame ins og t.d er guð til? Hvað er trú og hver var Jesú? Hvað er bæn? Hvernig á ég að biðja og fyrir hverjum? Hvað er kirkja? Hvernig á ég að hegða mér ef ég vil fylgja Jesú? Námskeiðsefnið tengir vel áleitnar spurningar unglinganna og svör trúarinnar og er hvatning til unglinganna til að spyrja og leita. Á föstudeginum munum við síðan fara í stutta kynnisferð.

Eftir að skóli hefst verða mánaðarlegar samverur í Bústaðakirkju og verða dagsetningar kynntar á námskeiðinu í ágúst. 
Fermingarferðalag og námskeið verður í Vatnaskóg 28. til 29. september
Eftir áramót verða styttri námskeið í kirkjunni.


Fermingardagar næsta árs 2010 eru:

21. mars 2010 sunnudagur kl. 10:30 og 13:30 

28. mars 2010 pálmasunnudagur kl. 10:30 og 13:30 

5. apríl 2010 annar páskadagur kl. 10:30

Skráningu tilvonandi fermingarbarns í fermingarstarf Bústaðakirkju er hægt að gera með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið palmi@kirkja.is merkt: skráning – ferming 2010

Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:

Nafn fermingarbarns, kennitala, fæðingarstaður, skírnardagur og netfang.

Nöfn foreldra og kenntitölur, netfang foreldra ásamt símanúmerum.

Gott væri að fá einnig símanúmer (farsíma) fermingarbarns.
 
Ef hægt er gott að fá óskir um fermingardag og tíma
.



Bókin sem við notum
Allir fá verkefnamöppu með fræðsluefni og verkefnum.
Þetta er mappa í A 4 broti og verður efni í hana afhent í tímunum eftir því sem efnið vinnst í náminu.
Mikilvægt er að leggja alúð í undirbúninginn og gera sér ljóst að við uppskerum eins og við sáum.

Hvar fæst bókin ?
Bókin fæst í Bústaðakirkju og kostar 1.000 krónur.
Mikilvægt er að eignast bókina strax, svo við getum verið samferða í tímunum.


Fundir með foreldrum fermingarbarna verða í ágúst, janúar og mars

Fermingarbörnin eiga síðan á fermingarfræðslutímabilinu að mæta í sjö almennar guðsþjónustur
Bið ég foreldra að fylgja þeim til guðsþjónustu.

Bústaðakirkja, kirkjan okkar
Það er gott að hugleiða hvað kirkjan okkar merkir. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Það er enginn til þess að annast um kirkjuna nema við sjálf. Íbúar sóknarinnar greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar.

Ef eitthvað þarf að lagfæra, þá greiðum við það, ef eitthvað skemmist er það okkar skaði.

Göngum því vel um kirkjuna okkar og hugsum um hana eins og okkar annað heimili.

Heimasíðan
Bústaðakirkja á heimasíðu

www.kirkja.is. eða kirkja.is

Þar viljum við reyna að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti.

Fermingarbörn sem búa erlendis verða í fermingarfræðslu á netinu. Nokkur þeirra munu koma inn í hópana hér heima síðustu dagana fyrir fermingar en önnur fermast næsta sumar.


 Það stendur ekki utan á þér hvort þú trúir.
En þú finnur, að lífið þitt verður dýrmætara.

Þá ertu fær um að geta elskað, grátið og hlegið.
Fær um að geta fyrirgefið.
Kannt að samgleðjast í stað þess að öfunda.

Að trúa, er töff fyrir þig !
Vertu töff en, trúðu samt.


Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur. Hér eru nokkur vers sem gætu komið að gagni við að velja . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel

Gögn vegna skriflegs verkefnis

Verkefni

<<september 2010>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar

Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2010. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar