Fyrirkomulag fermingarfræðslu Bústaðakirkju 2010 - 2011
Tilhögun fermingarfræðslunnar verður með líkum hætti og undanfarin ár og hefst með messu 15. ágúst kl. 11:00
15. ágúst messa kl. 11:00 fundur með foreldrum og fræðsla til kl. 15:00
16. ágúst fræðsla frá kl. 09:00 til 14:00
17. ágúst fræðsla frá kl. 09:00 til 14:00.
20. – 21. september fermingarnámskeið í Vatnaskógi.
laugardagsfræðsla 10:00 – 13:00 2 x fyrir áramót og 2 x eftir áramót (dags. augl. síðar)
Vikulegar samverur síðustu 6 vikur fyrir fermingar
Messusókn ekki sjaldnar en 7 sinnum í almenna messu og eru foreldrar beðnir að sækja messur með börnunum.
Þá eru fermingarbörn hvött til þátttöku í æskulýðsstarfi kirkjunnar.
Á námskeiðinu munum við taka á helstu atriðum kristinnar trúar í nokkrum skrefum. Fermingarbörnin fá verkefni til að leysa og leitað svara við spurningum eins og; Hver er Guð? Hvað er trú? Hver er Jesús? Hvað er bæn? Hvernig á ég að biðja og fyrir hverjum? Hvað er kirkja? Ber ég ábyrgð í sköpunarverkinu? Hvað er ást? Vinátta og gildi hennar.
Námskeiðsefnið tengir vel áleitnar spurningar unglinganna og svör trúarinnar og er hvatning til unglinganna að spyrja og leita.
Fermingardagar næsta árs eru: 10. apríl 2011 sunnudagur kl. 10:30 og 13:30
17. apríl 2011 pálmasunnudagur kl. 10:30 og 13:30
25. apríl 2011 annar í páskadagur kl. 10:30
Skráning tilvonandi fermingarbarns er framkvæmd með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið palmi@kirkja.is merkt: skráning – fermingarstarf
Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:
Nafn fermingarbarns, kennitala, skírnardagur og netfang fermingarbarns.
Nöfn foreldra ásamt símanúmerum og netföngum.
Gott væri einnig að fá farsímanúmer fermingarbarnsins.
Ef hægt er þá væri gott að fá beiðni um fermingardag.
Bústaðakirkja, kirkjan okkar
Það er gott að hugleiða hvað kirkjan okkar merkir. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Það er enginn til þess að annast um kirkjuna nema við sjálf. Íbúar sóknarinnar greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar.
Ef eitthvað þarf að lagfæra, þá greiðum við það, ef eitthvað skemmist er það okkar skaði.
Göngum því vel um kirkjuna okkar og hugsum um hana eins og okkar annað heimili.
Heimasíðan
Bústaðakirkja á heimasíðu
www.kirkja.is. eða kirkja.is
Þar viljum við reyna að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti.
Fermingarbörn sem búa erlendis verða í fermingarfræðslu á netinu. Nokkur þeirra munu koma inn í hópana hér heima síðustu dagana fyrir fermingar en önnur fermast næsta sumar.
Það stendur ekki utan á þér hvort þú trúir. En þú finnur, að lífið þitt verður dýrmætara.
Þá ertu fær um að geta elskað, grátið og hlegið. Fær um að geta fyrirgefið. Kannt að samgleðjast í stað þess að öfunda.
Að trúa, er töff fyrir þig ! Vertu töff en, trúðu samt.
|
Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur. Hér eru nokkur vers sem gætu komið að gagni við að velja . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel
Gögn vegna skriflegs verkefnis
Verkefni
Með bestu kveðju
Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur. . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel Gögn vegna skriflegs verkefnis Með bestu kveðju
Pálmi Matthíasson, sóknarprestur