Fyrirkomulag fermingarfræðslu Bústaðakirkju 2011 - 2012
Tilhögun fermingarfræðslunnar verður með líkum hætti og undanfarin ár.
Í stað fastra vikulegrar fræðslustunda verður námskeið í þriðju viku ágúst ( vikuna 15 – 19. ágúst) og hefst með messu kl. 11:00 þann 14. ágúst og verður síðan virka daga frá kl. 09:00 til um kl. 13:00.
Á námskeiðinu munum við taka á helstu atriðum kristinnar trúar í nokkrum skrefum. Fermingarbörnin fá nokkur verkefni til að leysa og mörgum spurningum varpað fram eins og Hver er Guð? Hvað er trú? Hver er Jesús? Hvað er bæn? Hvernig á ég að biðja og fyrir hverjum? Hvað er kirkja? Hvernig á ég að hegða mér ef ég vil fylgja Jesú? Ber ég ábyrgð í sköpunarverkinu?
Námskeiðsefnið tengir vel áleitnar spurningar unglinganna og svör trúarinnar og er hvatning til unglinganna að spyrja og leita.
Eftir að skóli hefst verða nokkrar samverur í Bústaðakirkju og verða dagsetningar kynntar síðar.
Þá verður farið í fermingarbarnaferðalag í Vatnaskóg í lok september.
Síðustu vikur fyrir fermingar verða svo vikulega samverur í Bústaðakirkju.
Þá eru fermingarbörn beðin að sækja almennar guðsþjónustur ekki sjaldnar en 7 sinnum og eru foreldrar beðnir að fylgja börnunum til messu.
Fermingardagar næsta árs eru: 25. mars 2012 sunnudagur kl. 10:30 og 13:30
1. apríl 2012 pálmasunnudagur kl. 10:30 og 13:30
9. apríl 2012 annar í páskadagur kl. 10:30
Skráning tilvonandi fermingarbarns er framkvæmd með því að senda eftirtaldar upplýsingar á netfangið palmi(hja)kirkja.is merkt: skráning – fermingarstarf
Upplýsingar sem þurfa að koma fram eru:
Nafn fermingarbarns, kennitala, skírnardagur og netfang fermingarbarns.
Nöfn foreldra ásamt símanúmerum og netföngum.
Gott væri einnig að fá farsímanúmer fermingarbarnsins.
Ef hægt er þá væri gott að fá beiðni um fermingardag.
Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur. Hér eru nokkur vers sem gætu komið að gagni við að velja . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel
Bústaðakirkja, kirkjan okkar
Það er gott að hugleiða hvað kirkjan okkar merkir. Við, sem söfnuður, eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Það er enginn til þess að annast um kirkjuna nema við sjálf. Íbúar sóknarinnar greiða til kirkjunnar sóknargjöld sem standa undir öllum rekstri hennar.
Ef eitthvað þarf að lagfæra, þá greiðum við það, ef eitthvað skemmist er það okkar skaði.
Göngum því vel um kirkjuna okkar og hugsum um hana eins og okkar annað heimili.
Heimasíðan
Bústaðakirkja á heimasíðu
www.kirkja.is. eða kirkja.is
Þar viljum við reyna að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti.
Fermingarbörn sem búa erlendis verða í fermingarfræðslu á netinu. Nokkur þeirra munu koma inn í hópana hér heima síðustu dagana fyrir fermingar en önnur fermast næsta sumar.
|
Það stendur ekki utan á þér hvort þú trúir.
En þú finnur, að lífið þitt verður dýrmætara.
Þá ertu fær um að geta elskað, grátið og hlegið.
Fær um að geta fyrirgefið.
Kannt að samgleðjast í stað þess að öfunda.
Að trúa, er töff fyrir þig !
Vertu töff en, trúðu samt.
|
Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur.
Hér eru nokkur vers sem gætu komið að gagni við að velja . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel
Gögn vegna skriflegs verkefnis
Verkefni fjarvinna
Með bestu kveðju
Gott er að huga að ritningargreinum til þess að fara með í fermingarathöfninni. Hvert fermingarbarn velur sér ritningargrein úr Biblíunni. Gott er að hafa í huga að ritningargreinin sé auðlesin og vel skiljanleg þeim er velur. . Lesið þessi vers vel og vitið hvort þar er eitthvað, sem ykkur líkar. Gangi ykkur vel Gögn vegna skriflegs verkefnis fjarvinnaMeð bestu kveðju
Pálmi Matthíasson, sóknarprestur