Ritning dagsins

18. maí 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Alt
 
Jóhanna V. Þórhallsdóttir alt hefur sungið með Kammerkór Bústaðakirkju um nokkurra ára skeið við ýmis tækifæri. Í Menntaskólanum við Hamrahlíð söng hún með menntaskólakórnum undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur og stofnaði hljómsveitina Diabolus in Musica sem gaf út tvær plötur. 1976 og 1978 Jóhanna söng með Háskólakórnum undir stjórn Hjálmars H. Ragnarssonar og fór í söngnám hjá John Speight í Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar. Þaðan lá leiðin í framhaldsnám í Royal Northern College of Music í Manchester og síðan í einkatíma til London og einnig Piacenza í Ítalíu og Vínarborgar í Austurríki.
Jóhanna hefur komið fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammersveit Reykjavíkur, sungið í óperum hjá Íslensku hljómsveitinni og Óperusmiðjunni. Einnig sungið og leikið hjá Alþýðuleikhúsinu og í Hvunndagsleikhúsinu og hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Hún hefur haldið tónleika á Norðurlöndum, í Englandi og á Ítalíu. Þá hefur Jóhanna raddþjálfað Kvennakór Reykjavíkur, Háteigskirkjukórinn, Karlakórinn Stefni, kór Íslendinga í Lundi og Kirkjukór Íslendinga í Kaupmannahöfn.  Auk þess að stjórna Barna- og Unglingakórum Bústaðakirkju stjórnar hún Léttsveit Reykjavíkur og kennir söng við Söngskóla Sigurðar Dementz.

Jóhanna hefur gefið út tvo sólódiska;
Flauelsmjúkar hendur 1997 og Lágnætti árið 2004






Margret Helga Kristjánsdóttir






Nathalía Druzin Halldórsdóttir hóf tónlistarnám ung að aldri í Tónlistarskóla Kópavogs og lærði á flautu og píanó fram á unglingsár.  Á háskólaárum sínum fór hún að sækja söngtíma og má segja að eiginlegt söngnám hafi hafist í Pétursborg í Rússlandi þar sem hún dvaldi í eitt á sem nemandi við háskólann þar í borg. Nathalía stundaði síðan söngnám hjá Elísabetu F. Eiríksdóttur og John Speight í nokkur ár meðfram námi og vinnu.  Árið 2003 hóf hún nám við Nýja Tónlistarskólann þar sem hún hefur verið nemandi Alinu Dubik.  Árið 2006 lauk hún 8.stigi undir handleiðslu Alinu og Jónasar Sen. Nathalía hefur tekið þátt í óperuuppfærslum á vegum Sumaróperunnar, Íslensku óperunnar og hjá Óperustúdíói Íslensku Óperunnar þar sem hún fór með hlutverk Zitu í Gianni Schicchi árið 2007. Hún hefur komið fram sem einsöngvari á fjölmörgum tónleikum og við kirkjulegar athafnir. Í janúar 2009 kom hún fram sem einsöngvari með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Nathalía er með BA próf í rússnesku og bókmenntafræði frá HÍ, auk þess sem hún stundar MSc nám í viðskiptafræði við sama skóla.  








Svava Kristín Ingólfsdóttir stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík þaðan sem hún lauk söngkennaraprófi.   Kennarar hennar þar voru m.a. Katrín Sigurðardóttir, Þuríður Pálsdóttir og Jórunn Viðar.  Hún hélt til framhaldnáms í söng og sótti einkatíma  hjá Prófessor André Orlowitz  í Kaupmannahöfn og hjá Sten Sjöstedt í Gautaborg.  Svava hefur líka lokið kórstjórnarnámi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar og tók nú síðasta vetur 1. árs diploma í Complete Vocal Technique.

     

Svava hefur starfað bæði hér á landi, í Danmörku og í Svíþjóð við söng, söngkennslu og kórstjórn.

Hún hefur sungið með atvinnukórum eins og Kammerkór Langholtskirkju, Hljómkórnum, Kór íslensku óperunnar, þjóðleikhúskórnum og nú með Kammerkór Bústaðakirkju.

Sem einsöngvari hefur Svava sungið á fjöldamörgum einsöngstónleikum, sungið hlutverk í kirkjuverkum og komið fram sem einsöngvari við fjölda mörg önnur tilefni.  Hún hefur starfað með tónlistartríóinu Kötlu frá upphafi en þau hafa komið fram á fjölda mörgum tónleikum bæði hér á landi og á Norðurlöndunum, þar sem þau hafa flutt íslenska tónlist, allt frá okkar elstu þjóðlögum til nútímatónlistar. 

 

Á efniskrá Svövu er klassísk ljóð og óperuaríur, kirkjulegar aríur, íslensk þjóðlög, sönglög, dægurlög og djass.

Frekari uppl. er hægt að fá hjá Svövu á netfangi svavaki@simnet.is og síma 867 7882

<<maí 2012>>
mþmffls
30123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031123
45678910
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar