Ritning dagsins

18. maí 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Tenór


Hlöðver Sigurðsson gekk til liðs við Kammerkórinn vorið 2007 og syngur jafnframt með kirkjukór Bústaðakirkju. Hann er fæddur og uppalin á Siglufirði. Þar kynntist hann tónlistarstjóra Bústaðakirkju Renötu Ivan en hún var um nokkurra ára skeið organisti á Siglufirði og Hlöðver kom margsinnsi fram með henni og söng þegar hann var staddur á landinu. Á  unglingsárunum stundaði hann nám á trompet við Tónlistarskóla Siglufjarðar og tók svo upp þráðinn að nýju við tónlistarnámið árið 1996 þegar hann hóf söngnám hjá Antoníu Hevesi. Hlöðver lauk 8. stigs prófi frá Tónlistarskóla Siglufjarðar í apríl árið 2001. Veturinn 2001-2002 stundaði Hlöðver framhaldsnám við Guildhall School of Music and Drama í London, þar sem aðalkennari hans var prof. Rudolf Piernay.  Frá árinu 2002-2006 stundaði Hlöðver nám við Mozarteum tónlistarháskólann í Salzburg Austurríki þar sem aðalkennari hans var prof. Martha Sharp.  Hlöðver var einnig í Ljóða og Oratoriudeild skólans þar sem hann naut leiðsagnar prof. Wolfgang Holzmair. Hlöðver stundar núna einkanám hjá Kristjáni Jóhannssyni Tenór á Ítalíu.

Helstu hlutverk Hlöðvers eru Don Ottavio (Don Giovanni), Belfiore (La finta giardiniera), Basilio og Don Curzio (Le nozze di Figaro), Bastien (Bastien und Bastienne), Monsieur Vogelsang (Der Schauspieldirektor) allt Óperur eftir Mozart, einnig Ernesto (Don Pasquale) eftir Donizetti og Alfredo (La Traviata) eftir Verdi.Hlöðver hefur tekið þátt í fjölmörgum tónleikum og haldið einsöngstónleika heima og erlendis, meðal annars í Ungverjalandi, Frakklandi, Austurríki og Ítalíu. Hann hefur einnig þrisvar tekið þátt í þjóðlagahátíðinni á Siglufirði.

 

 

 

Jóhann Friðgeir Valdimarsson hefur alla tíð frá því að hann hóf sitt söngnám verið í Bústaðakirkjukór og sungið með Kammerkór Bústaðakirkju við ýmsar kirkjulegar athafnir og víðar. Hann er fæddur í Reykjavík, ungur hóf hann tónlistarnám og lærði á píanó og trompet bæði í Tónmenntaskólanum og Tónlistarskólanum í Reykjavík.

Söngferil sinn hóf hann árið 1995 í Söngskólanum í Reykjavík hjá Garðari Cortes. Kennarar hans voru síðan Magnús Jónsson, Bergþór Pálsson og Þuríður Pálsdóttir sem hann lauk hjá 8. stigs prófi með hæstu einkunn vorið 1998. Í söngskólanum voru Iwona Jagla, Hólmfríður Sigurðardóttir og Ólafur Vignir Albertsson undirleikarar hans, en Ólafur Vignir hefur síðan verið hans aðalundirleikari hér á landi. Sama ár fór hann til þriggja ára náms í Mílanó hjá prófessor Giovanna Canetti, yfirkennara hjá Conservatori Giuseppi Verdi. Hann sótti líka einkatíma hjá M. Angelo Bertacchi í Modena og M. Franco Ghitti í Brescia. Jóhann Friðgeir hefur sungið fjölda einsöngstónleika á Íslandi og meginlandi Evrópu þar sem hann hefur ávallt fengið framúrskarandi viðtökur og dóma. Jóhann Friðgeir hefur gefið út þrjá hljómdiska frá árunum 2001, 2002 og 2006. Jóhann Friðgeir var fastráðinn við Íslensku óperuna frá ágúst 2002 í eitt ár. Undanfarið hefur hann sungið mörg aðalhlutverk úr óperuheiminum í Evrópu, Bandaríkjunum og hér heima, en þeirra á meðal eru;

G.Verdi: Alfredo úr La Traviata, Macduff úr Macbeth, Radames úr Aida og Ismaele úr Nabucco. G.Puccini: Cavaradossi úr Toscu, Pinkerton úr Madama Butterfly. Bizet: Don José úr Carmen. Shostakovich: Sinowi úr Lady Macbeth of Mtsensk. Mossorgsky: Dmitri/Grigorij úr Boris Godunov. Canio úr Pagliacci eftir R. Leoncavallo og Turiddu úr Cavalleria Rusticana eftir P. Mascagni ásamt fjölda sálumessa. Hér heima hefur Jóhann Friðgeir hefur sungið einsöng við ýmis tækifæri t.d. með Karlakórnum Fóstbræðrum, Karlakór Reykjavíkur, Skagfirsku söngsveitinni, Móttettukór Hallgrímskirkju, Samkór Kópavogs, Léttsveit Reykjavíkur, Kvennakór Hafnarfjarðar, Kvennakór Reykjavíkur, Óperukór Hafnarfjarðar og Reykjavíkur, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Tangósveit lýðveldisins, Tríói Reykjavíkur og mörgum fleirum.

Í dag er Jóhann Friðgeir búsettur á Íslandi ásamt eiginkonu sinni og þremur börnum.

 

 



Svanur Valgeirsson tenór hefur sungið með Kammerkór Bústaðakirkju frá árinu 1991 við kirkjulegar athafnir og hefur komið fram sem einsöngvari með hópnumog víðar auk þess að syngja með kvartett innan hópsins við brúðkaup og á mannamótum ýmiskonar. Svanur var um tveggja ára skeið nemandi Jóhönnu Linnet í Tónlistarskóla FÍH og í eitt ár hjá Sverri Guðjóns í Nýja tónlistarskólanum. Hefur þar að auki verið í einkatímum hjá nokkrum söngkennurum; er núna í söngtímum hjá Guðrúnu Jóhönnu Jónsdóttur. Svanur hefur gaman að flestum tegundum tónlistar.

 

 

 

 

 

Þorsteinn Freyr Sigurðsson tenór er fæddur árið 1984 á Siglufirði og er þar upp alinn. Hann hóf söngnám í Reykjavík árið 2005 hjá Elísabetu Erlingsdóttir í Tónlistarskóla Reykjavíkur og því næst við Listaháskólann árið 2007 einnig hjá Elísabetu Erlingdóttir. Þorsteinn hefur sótt ýmis masterclass námskeið og ýmsa einkatíma, eftirtaldir eru t.d. Krisján Jóhannson, Martha Sharp frá Mozarteum Salzburgh, Prófessor Harald Bjorköy við Griegakademíuna í Bergen, Gunnar Forshuvud frá tónlistar-akademiunni í Gautaborg o.s.frv.

Þorsteinn hefur tekið þátt í óperstúdíói í íslensku óperunni í tvö skipti.

Cosi fan tutti haustið 2008 og þar á undan Nótt í Feneyjum árið 2006, þar sem hann fór með hlutverk Barbaruchio. Síðasta árið 2008 hefur þorsteinn verið í kór íslensku óperunnar og tók þátt í uppsetningunum á Pagliacci og Cavalleria Rusticana. Þorsteinn hefur verið virkur meðlimur í Bústaðakirkjukór síðan haustið 2007 og er einnig meðlimur í kammerkórnum og hefur sungið í útfararkórnum ásamt einstaka einsöngs í athöfnum, tónleikum og veislum. Einnig hefur Þorsteinn sungið á ýmsum tónleikum þ.á.m.á Siglufirði ásamt Hlöðve Sigurðsyni "stóra bróðir" og Þórunni Marínósdóttur konu hans.

<<maí 2012>>
mþmffls
30123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031123
45678910
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar