Ritning dagsins

07. febrúar 2012

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Starf aldraðra
Samverur eru á miðvikudögum kl 13:00-16:30 yfir vetrartímann.
Samvera okkar byrjar miðvikudaginn 22. september með guðsþjónustu í Bústaðakirkju kl.14.
Guðrún S. Jakobsdóttir mun leiða starfið í vetur og með henni munu vera þær Elín Hrefna Hannesdóttir, Laufey Kristjánsdóttir, Sigrún Sturludóttir og Þóra Minerva Hreiðarsdóttir

Hvað og hvernig ?
Í vetur verður spilað og föndrað sem fyrr. Góðir gestir koma í heimsókn, sem miðla okkur af sjóðum sínum, syngja, segja frá og flytja fróðleg erindi og sóknarprestur annast ritningarlestur og bæn.
Gátan víðfræga verður á sínum stað og verðlaun veitt fyrir rétt svör.

Sigurbjörg verður í eldhúsinu og töfrar fram meðlætið.

Kaffið kostar kr. 400.-

Bílamiðar kr. 200.-

Átt þú ekki eitthvað í pokahorninu ?
Öll eigum við okkar eigið pokahorn. Í því leynist oft fróðleikur og skemmtilegt efni, sem á sannarlega erindi til annarra.
Við hvetjum ykkur til þess að koma með ykkar efni og deila því með okkur hinum á samverustundunum.
Samverurnar verða skemmtilegri og innihaldsríkari ef við gefum eitthvað af okkur sjálfum.

Ef þið viljið láta í ykkur heyra, þá endilega skrifið til gudrun@verktaki.is    

Allar góðar hugmyndir eru vel þegnar.  Starfið verður enn betra ef við tölum saman í einlægni.

Bílaþjónusta
Þið sem óskið eftir að láta sækja ykkur fyrir samverustundirnar eru beðin að skrá ykkur hjá kirkjuvörðum. Síðan mun okkar ágæti Grétar koma og sækja ykkur.

Kirkjuverðir sími 553 8500
Hikið ekki við að nota bílaþjónustuna.

Bústaðakirkja - kirkjan okkar !
Það er gott að hugleiða hvað kirkjan okkar merkir. Við erum kirkjan, söfnuðurinn, og eigum saman kirkjuhúsið og safnaðarheimilið. Það er enginn til þess að annast um kirkjuna nema við sjálf.
Við glæðum hana lífi og vináttu með því að koma þar saman og njóta samverustundanna. Látum kirkjuna vera okkar annað heimili.
 
Heimasíða Bústaðakirkju er: 

www.kirkja.is

Þar viljum við reyna að hafa allar upplýsingar um starfið og ýmsa aðra þætti.
Myndir úr starfinu verða einnig á síðunni.
<<febrúar 2012>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728291234
567891011
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2012. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar

Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar