Í Bústaðakirkju er öflugt tónlistarlíf meðal barna, unglinga og fullorðinna.
Kirkjukór
Kirkjukórinn æfir á miðvikudögum kl. 18:00- 20:00
Englakór
Barnakór fyrir 5 – 7 ára æfir á miðvikudögum kl. 16:15
Barnakór
Barnakór fyrir 8 – 11 ára æfir á miðvikudögum kl. 17:15
Kammerkór unglinga
Kammerkór verður með æfingar á fimmtudögum kl. 16:15
Kórstjóri barna- og unglingakóra er: Svava Kristín Ingólfsdóttir
sími: 867 7882, netfang:
svava@kirkja.isForeldrafélag barna og unglingakóra. Öflugt foreldrafélag stendur að baki starfinu og hefur verið mjög drífandi í ýmsum þáttum starfsins.
Glæðurnar, Kór Kvenfélags Bústaðakirkju.
Kvennakórinn Glæðurnar var stofnaður haustið 1994. Allar konur sem hafa gaman af söng eru velkomnar í kórinn. Fyrsta æfing vetrarins fer fram fimmtudaginn 22. september. Kórstjóri er Arngerður Valgarðsdóttir. Kórinn hefur komið fram við margvísleg tækifæri og sungið í messum og margvíslegum skemmtunum. Þetta er frábær hópur frábærra kvenna, sem allar syngja með hjartanu.
Æfingar kórsins eru á fimmtudagskvöldum kl. 18:00 í safnaðarheimili Bústaðakirkju.
Nánari upplýsingar veita: Signý Gunnarsdóttir, sími: 581-4842 og Hrefna Magnúsdóttir, sími: 551-8482