
Ingólfur Helgason er fæddur 1957, en hann söng fyrst opinberlega á öðru ári í strætó.Stúdent frá Menntaskólanum við Tjörnina 1977.
Söngnám stundaði hann við Tólistarskóla Reykjavíkur og Söngskólann í Reykjavík. Kennarar hans voru Halldór Vilhelmsson, Már Magnússon, Magnús Jónsson og Jón Þorsteinsson.
Ingólfur hefur sungið með mjög mörgum kórum eins ogKór Menntaskólans við Tjörnina, Háskólakórinn, Karlakór Reykjavíkur, Óratoríukórinn, Dómkórinn, Kór Bústaðakirkju, Kór Áskirkju, Hljómeyki, Mótettukórinn, Kór Íslensku Óperunnar, Kammerkór Dómkirkjunnar, Kammerkór Bústaðakirkju, Kammerkór Fríkirkjunnar, Tónakórinn og Voces Masculorum einnig með sönghópnum Emil og Anna Sigga.
Einnig söng hann hlutverk Dulcamara í uppfærslu Söngskólans á Ástardrykknum svo og einsöng við ýmsar athafnir og með kórum á tónleikum og við ýmis tækifæri.

Sæberg Sigurðsson, bass-baritón, lauk burtfararprófi frá Söngskóla Sigurðar Demetz árið 2006, þar sem hann var nemandi Gunnars Guðbjörnssonar og Jóhanns Smára Sævarssonar.
Eftir útskrift hér heima hélt Sæberg til meistaranáms við Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow í Skotlandi, en þaðan útskrifaðist hann árið 2008.
Eftir útskrift hefur Sæberg meðal annars starfað með Kór Íslensku óperunnar og Kammerkór Bústaðakirkju auk þess að koma fram sem einsöngvari við hin ýmsu tækifæri.
Sæberg hefur sérhæft sig í ljóða- og óratoríusöng en hefur líka sungið nokkur óperuhlutverk, svo sem Il Commendatore í óperunni Don Giovanni eftir Mozart og Superintendent Budd í óperunni Albert Herring eftir Benjamin Britten.