
Edda Austmann lauk BMus. gráðu í Royal Academy of Music í London og MMus. gráðu í óperuháskólanum Royal Scottish Academy of Music and Drama í Glasgow. Þar hlaut hún Alþjóðastyrk RSAMD, Thomas Sivewright Catto verðlaunin, Sandy Orr verðlaunin og Jennifer Vyvyan verðlaunin.
Edda reyndi frumraun sína í Zürich óperunni sem Papagena (Töfraflautan) vorið 2006 og var þar einnig staðgengill fyrir hlutverk Despinu (Cosi fan tutte) og Serpettu (La finta giardiniera). Á Bretlandi söng Edda hlutverk Nannettu (Falstaff), Poppeu (Krýning Poppeu), Frasquitu (Carmen), Damon (Acis and Galathea) og Barbarinu (Brúðkaup Fígarós). Á Spáni söng hún hlutverk Elisabettu (Roberto Devereux).
Edda hefur komið fram með Konunglegu Skosku Sinfóníuhljómsveitinni og með Zürich Kammerhljómsveitinni. Óratoríuverkefni hennar telja Exultate Jubilate, Sálumessu eftir Mozart og Messía eftir Handel. Meðal tónleikauppfærslna má nefna Bachianas Brasileiras No. 5 eftir Villa-Lobos og L’oca del Cairo eftir Mozart.
Á Íslandi hefur Edda haldið tónleika í Salnum undir nafninu Tónar Evrópu, í Iðnó undir nafninu Amorvísur og verið gestur Antoníu Hevesí á hádegistónleikaröð Hafnarborgar.
Edda syngur tónlist í fjölbreyttum stíl, allt frá dægurlögum til hástemmdrar kirkjutónlistar sem og eftir óskum.
Gréta Hergils Valdimarsdóttir
Ólöf G. Ásbjörnsdóttir