Ritning dagsins

10. september 2010

Það er Hið íslenska Biblíufélag sem uppfærir ritningudagsins.

Netpóstur

Viljirðu vera í þeim góða hópi sem fær reglulega fréttir úr safnaðarstarfinu þarftu bara að skrá þig á Netpóstslistann hér að neðan.

Bústaðarkirkja

Bústaðakirkja
v/ Tunguveg - 108 Reykjavík
S: 553 8500 - F: 553 8501

Netföng http://www.kirkja.is

Sr. Pálmi Matthíasson, sóknarprestur

Sr. Pálmi Matthíasson
Starfsferill

Pálmi fæddist á Akureyri 21.8. 1951. Hann varð stúdent frá MA 1971 og lauk embættisprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1977.

Pálmi starfaði hjá sem lögrelgumaður á Akureyri og í  Rannsóknarlögreglunni í Reykjavík og RLR á námsárum í háskóla. Áður vann hann við hótelrekstur, byggingariðnað og sjómennsku.  Hann varð sóknarprestur í Melstaðarprestakalli í Húnavatnsprófastdæmi 1977-81, sóknarprestur í Glerárprestakalli á Akureyri 1981-89 og er sóknarprestur í Bústaðaprestakalli frá 1989. Þá stundaði hann dagskrárgerð og fréttamennsku hjá Ríkisútvarpinu 1981-89.

Pálmi sat í stjórnum Æskulýðsfélags Akureyrarkirkju, Ungtemplarafélagsins Fannar á Akureyri, Íþróttabandlags Akureyrar,  Æskulýðssambands kirkjunnar í Hólastifti 1979-89, í kjaranefnd Prestafélags Íslands 1979-82. Hann var formaður Frjálsíþróttaráðs Akureyrar og Handknattleiksráðs Akureyrar og formaður Íþróttabandalags Akureyrar 1989. Hann var um árabil í dómaranefnd, landsliðsnefnd og stjórn HSÍ og  í héraðsnefnd
Reykjavíkurprófastsdæmis vestra frá 1991.

Fjölskylda

Pálmi kvæntist 12.10. 1974 Unni Ólafsdóttur, f. 9.júní 1954, kennara og skrifstofumanni. Foreldrar hennar eru Ólafur Jóhannesson, fv. framkvæmdastjóri Happdrættis SÍBS, og Borghildur Kjartansdóttir kjólameistari.

Dóttir Pálma og Unnar er Hanna María, f. 25. september 1975, viðskiptafræðingur. Eigimaður hennar er Davíð Freyr Oddsson, f. 26. nóvember 1974, cand. theol og MBA. Börn þeirra eru; Unnur María f. 27. október 2003 og Pálmi Freyr f. 11. október 2006.

Foreldrar Pálma: Matthías Einarsson, f. 10.júní 1926, fv. lögregluvarðstjóri á Akureyri, og k.h., Jóhanna María Pálmadóttir, f. 28.ágúst 1927, fv. fulltrúi.

Bræður Pálma eru Stefán Einar, f. 4.maí. 1958, doktor í æðaskurðlækningum og sr. Gunnar Rúnar, f. 4.apríl 1961, sjúkrahúsprestur.

 

<<september 2010>>
mþmffls
303112345
6789101112
13141516171819
20212223242526
27282930123
45678910
Messur í beinni

Á sunnudögum getur þú fylgst með beinni útsendingu frá starfi kirkjunnar í gegnum netið.

Messur í beinni

Media Player

Smelltu á takkann til að ná í forrit til þess að horfa á messurnar.

Pistlar
Eggið brotnar og hvað svo?
Pálmi Matthíasson

Páskaegg og páskar hljómar saman. Súkkulaði og málháttur er spennandi blanda. Allir vilja ... Nánar

Ferming framundan
Pálmi Matthíasson

Nú er verið að skrá væntanleg fermingarbörn í Bústaðakirkju vorið 2010. Undirbúningur hefst í ágúst ... Nánar